13. desember 2016
Fjölbreytt samfélagsverkefni hlutu styrk frá Styrktarsjóði Fjarðaáls
Þann 6. desember sl. voru veittir 20 styrkir úr Styrktarsjóði Alcoa Fjarðaáls og 16 styrkir frá Spretti, afrekssjóði UÍA og Fjarðaáls. Styrkúthlutun úr Styrktarsjóði og Spretti fer fram tvisvar á ári.
Alcoa Fjarðaál tekur ríkan þátt í samfélagsmálum og veitir margvíslega styrki með ýmsum leiðum. Annars vegar koma styrkir frá Samfélagssjóði Alcoa (Alcoa Foundation) í Bandaríkjunum og hins vegar beint frá Alcoa Fjarðaáli.
Styrkir frá Samfélagssjóði Alcoa (Alcoa Foundation) eru veittir til mjög stórra verkefna og hafa t.d. runnið til Breiðdalsseturs, uppbyggingar Sómastaða, Vina Vatnajökuls og ýmiss konar menntunarverkefna. Þaðan koma líka styrkir með sjálfboðaliðaverkefnum starfsmanna Fjarðaáls sem kallast „Action“ og „Alcoans in Motion“ ásamt árlegum „Bravó“ styrkjum til félagasamtaka sem starfsmenn Alcoa tilheyra og hafa unnið fyrir. Á síðasta ári veitti Fjarðaál og Samfélagssjóður Alcoa um 140 milljónum króna í styrki til fjölbreyttra samfélagsverkefna á Austurlandi.
Styrktarsjóður Fjarðaáls
Formleg athöfn af tilefni styrkveitinga frá Styrktarsjóði Fjarðaáls og Spretti var haldin í Safnaðarheimlinu á Reyðarfirði þriðjudaginn 6. desember sl.
Í reglum um styrktarsjóðinn segir m.a.: „Sótt er um styrki allt að einni milljón króna hjá Alcoa Fjarðaáli. Stuðningur er einungis veittur frjálsum félagasamtökum eða stofnunum á Mið-Austurlandi. Ekki eru veittir styrkir til einstaklinga, stjórnmálasamtaka, trúfélaga eða til almenns reksturs félaga.“ Því eru aðilar hvattir til þess að sækja um sérstök verkefni í þágu samfélagsins.
Alls fengu 20 aðilar styrki að þessu sinni og nam heildarstyrkupphæð tæpum 6 milljónum króna.
Hér fyrir neðan má sjá lista yfir þá aðila sem hlutu styrk í vorúthlutun Styrktarsjóðs Fjarðaáls.
Umsækjandi | Verkefni |
Björgunarsveitin Ársól | Kaup á bifreið |
Félag áhugafólks um fornleifafræði í Stöðvarfirði | Uppgröftur landnámsskála í Stöð í Stöðvarfirði |
Kammerkór Egilsstaðarkirkju
| Uppsetning á Messías eftir G.F. Handel |
List í ljósi
| Útilistahátíð með ljósið sem þema |
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs
| Setja upp vörður við 22 heiðarbýli á Jökuldals- og Vopnfjarðarheiði. „Heiðarbýli í göngufæri“ |
Ferðamálahópur Borgarfjarðar eystri
| Viðhald og uppbygging innviða göngusvæðisins á Víknaslóðum við Borgarfjörð eystri |
Breiðdalssetur | Gerð göngukorts af svæðinu Breiðdal, Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði |
Félagsmiðstöðvar í Fjarðabyggð
| Ungmennahátíðin Kuldaboli 2016 |
SamAust – samtök félagsmiðstöðva á Austurlandi | Koma margvíslegum verkefnum af stað |
Sláturhúsið – menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs | Heiðurs- og yfirlitstónleikar í tilefni af 75 ára afmæli Ronnie James Dio. |
TAK – tengslanet austfirskra kvenna | 10 ára afmæli félagsins með veglegri vetrardagskrá |
Dropinn – styrktarfélag barna með sykursýki | Sumarbúðir barna með sykursýki í Skagafirði sumarið 2017 |
Hjartavernd - rannsóknamiðstöð | Endurútgáfa forvarnar- og fræðslubæklinga um t.d. offitu, reykingar o.fl. |
Brettafélag Fjarðabyggðar | Snjóbrettaskóli fyrir yngri krakka og byrjendur |
Jassklúbbur Egilsstaða | Jazzhátíð Egilsstaða 2016 |
Foreldrafélög grunnskóla Fljótsdalshéraðs | Sjálfstyrkingarnámskeiðið „Út fyrir kassann“ fyrir unglingastig drengja. |
9. bekkur Nesskóla | Uppsetning á Galdrakarlinum í Oz |
Ungmennafélag Borgarfjarðar eystri | 100 ára afmælisdagskrá félagsins 2017 |
MMF - málfundafélag ME | Styrkja starf MMF og þátttöku í Morfís |
Dagsþjónustan Vinabær á Egilsstöðum | Kaup á spjaldtölvu fyrir starfsemina |
Fulltrúar styrkþega sem fengu úthlutað úr Styrktarsjóði Alcoa Fjarðaáls ásamt fulltrúum Alcoa.
Úthlutun úr Spretti styrktarsjóði
Að lokinni formlegri úthlutun úr Styrktarsjóði Alcoa Fjarðaáls fór fram seinni úthlutun ársins úr afrekssjóðnum Spretti. Sjóðnum er einkum ætlað að styrkja íþróttaiðkun barna og unglinga með einkunnarorð Alcoa um afburði (excellence) að leiðarljósi. Alcoa Fjarðaál sér um fjármögnun sjóðsins en UÍA um skipulag og utanumhald. Í úthlutunarnefndinni situr fólk frá bæði ÚÍA og Alcoa sem fer yfir umsóknir og ákveður úthlutun úr sjóðnum. Á hverju ári eru veittir afreksstyrkir, iðkendastyrkir, þjálfarastyrkir og félagastyrkir auk þess sem íþróttamaður Austurlands er styrktur sérstaklega.
Að þessu sinni voru veittir fjórir afreksstyrkir, sjö iðkendastyrkir og tveir þjálfarar fengu styrk til náms. Þrjú aðildarfélög UÍA fengu styrk vegna sértækra verkefna.
Afreksstyrki hlutu:
Birkir Freyr Elvarsson frá Þrótti, vegna unglingalandsliðsverkefna í blaki.
Valdís Kapitola Þorvarðardóttir frá Þrótti, vegna unglingalandsliðsverkefna í blaki.
Galdur Máni Davíðsson frá Þrótti/Huginn, vegna unglingalandsliðsverkefna í blaki.
Hrafnhildur Ásta Njálsdóttir frá Þrótti, vegna unglingalandsliðsverkefna í blaki.
Iðkendastyrki hlutu:
Helga Jóna Svansdóttir frá Hetti, vegna æfinga- og keppnisferðalaga í frjálsum íþróttum.
Reynir Birgisson frá Brettafélagi Fjarðabyggðar, vegna æfinga- og keppnisferða í brettaíþróttum.
Anna Karen Marinósdóttir frá Þrótti, vegna unglingalandsliðsverkefna í blaki.
Börkur Marinósson frá Þrótti, vegna æfinga- og keppnisferða í blaki og knattspyrnu.
Gunnar Einarsson frá Hugin, vegna æfinga- og keppnisferða í blaki og golfi.
Tinna Rut Þórarinsdóttir frá Þrótti, vegna unglingalandsliðsverkefna í blaki.
Embla Rán Baldursdóttir frá SKÍS, vegna æfinga- og keppnisferða í skíðaíþróttum.
Félagastyrki hlutu:
Frjálsíþróttadeild Hattar vegna æfingabúða.
UMFB vegna íþróttadagskrár í tilefni af 100 ára afmæli félagsins.
Brettafélag Fjarðabyggðar vegna Brettaskóla fyrir byrjendur.
Þjálfarastyrki hlutu:
Björgvin Hólm Birgisson frá Brettafélagi Fjarðabyggðar, vegna þjálfaranámskeiðs í brettaíþróttum.
Sif Guðmundsdóttir frá SKÍS, vegna þjálfaranámskeiðs í skíðaíþróttum.