Fréttir
-
28. desember 2016
Laun voru hvergi hærri en í Fjarðabyggð árið 2015
Á aðfangadag birti Viðskiptablaðið niðurstöður úttektar sem blaðið gerði á tekjum og eignum íbúa tíu stærstu sveitarfélaga landsins. Niðurstöðurnar sýndu að íbúar Fjarðabyggðar voru þeir launahæstu á landinu á síðasta ári samkvæmt tölum frá Ríkisskattstjóra. Myndin sýnir framkvæmdir við íbúðarhús í Fjarðabyggð. Að sögn Viðskiptablaðsins voru meðallaun í Fjarðabyggð tæplega...
meira -
21. desember 2016
Starfsfólk Fjarðaáls í jólaskapi
Hjá Fjarðaáli hefur jólaundirbúningur staðið yfir undanfarinn mánuð. Þann 27. nóvember og 11. desember voru glæsilegar jólatrésskemmtanir í álverinu en þá voru 200 piparkökuhús gerð og jólasveinar komu í heimsókn. Sterk hefð hefur myndast fyrir skógarhöggi Sóma, starfsmannafélags álversins, fyrir jólin. Sómi bauð félagsmönnum að höggva eða saga sitt eigið...
meira -
20. desember 2016
Frátekin vistorkustæði fyrir umhverfisvæna bíla
Alcoa Fjarðaál leggur mikla áherslu á umhverfismál og stuðlar að aukinni meðvitund starfsmanna um þennan málaflokk með ýmiss konar fræðslu og þjálfun. Fyrirtækið hefur sérstaklega hvatt starfsmenn til þess að velja sér bíla sem hafa lágmarksáhrif á umhverfið. Sem viðleitni í þá átt hafa nú verið tekin frá sex stæði...
meira -
13. desember 2016
Fjölbreytt samfélagsverkefni hlutu styrk frá Styrktarsjóði Fjarðaáls
Þann 6. desember sl. voru veittir 20 styrkir úr Styrktarsjóði Alcoa Fjarðaáls og 16 styrkir frá Spretti, afrekssjóði UÍA og Fjarðaáls. Styrkúthlutun úr Styrktarsjóði og Spretti fer fram tvisvar á ári. Alcoa Fjarðaál tekur ríkan þátt í samfélagsmálum og veitir margvíslega styrki með ýmsum leiðum. Annars vegar koma styrkir frá...
meira -
12. desember 2016
22 útskrifast úr framhaldsnámi við Stóriðjuskóla Fjarðaáls
Þann 7. desember síðastliðinn útskrifuðust 22 starfsmenn frá Stóriðjuskóla Fjarðaáls. Að skólanum standa Alcoa Fjarðaál, Austurbrú og Verkmenntaskóli Austurlands. Er þetta í þriðja sinn sem nemendur útskrifast úr framhaldsnámi Stóriðjuskólans, en skólinn hóf göngu sína haustið 2011. Útskriftin fór fram í mötuneyti fyrirtækisins, að loknum kynningum á lokaverkefnum nemenda. Útskriftarhópurinn....
meira -
06. desember 2016
Alcoa kynnir SUSTANA álvörur: framleiddar með lágmarks kolefnalosun og úr endurunnu efni
Nýja framleiðslulínan felst í tveimur vöruflokkum, ECOLUM™ og ECODURA™ og er vel til þess fallin að mæta kröfum viðskiptavina um vörur úr áli sem falla að sjálfbærnisjónarmiðum. Framleiðslulínan byggir á langtíma stefnu Alcoa um sjálfbæra þróun. Bás Alcoa á sýningunni í Dusseldorf. SUSTANA vörulínan var frumsýnd á álsýningunni í Dusseldorf...
meira -
24. nóvember 2016
Framleiðslusérfræðingur óskast í steypuskála Fjarðaáls
Við leitum að öflugum liðsmanni í tækniteymi steypuskála Alcoa Fjarðaáls. Framleiðslusérfræðingur ber ábyrgð á rekstri framleiðslutækja og styður daglega stjórnun á viðkomandi framleiðslusvæði. Steypuskáli Fjarðaáls er meðal þeirra fullkomnustu í heiminum. Ábyrgð og verkefni Bera ábyrgð á rekstri framleiðslutækja Styðja daglega stjórnun á framleiðsluvæði Leiða umbætur á framleiðslusvæðinu Fylgja eftir...
meira -
16. nóvember 2016
Álframleiðsla jákvæðasta framlag Íslands til loftslagsmála
Í nýútgefnu Tímariti Háskólans í Reykjavík birtist grein eftir Guðrúnu Arnbjörgu Sævarsdóttur, forseta tækni- og verkfræðideildar HR. Guðrún Arnbjörg bendir m.a. á það í greininni hversu mikilvægt sé að taka tillit til loftslagsmála í alþjóðlegu samhengi þegar ákvarðanir eru teknar varðandi virkjanir á endurnýjanlegum orkugjöfum á Íslandi. Álframleiðslan á Íslandi...
meira -
04. nóvember 2016
Leiðtoginn Rebekka Rán Egilsdóttir er komin í hóp fagfólksins á mbl.is
Í gær var birt viðtal við Rebekku Rán Egilsdóttur á mbl.is í þáttaröðinni „Fagfólk" undir fyrirsögninni „Konum í álveri fjölgar." Í kynningu á þáttaröðinni á mbl.is segir: „Fjölmargir frábærir starfskraftar vinna góð og skapandi störf hér á landi þar sem verkvitið skiptir höfuðmáli. Á næstu mánuðum mun Morgunblaðið og mbl.is...
meira -
01. nóvember 2016
Alcoa Corporation, leiðandi fyrirtæki í báxít-, súráls- og álframleiðslu hleypt af stokkunum í dag
Alcoa Corporation tilkynnti í dag að nú sé aðskilnaðarferli fyrirtækisins frá móðurfyrirtækinu Alcoa Inc. (sem nú heitir Arconic Inc.) að fullu lokið og að nýja fyrirtækið sé nú rekið sem sjálfstætt fyrirtæki sem skráð er hjá Kauphöllinni í New York með auðkenninu „AA.“ Alcoa Corporation er alþjóðlegt kostnaðarskilvirkt fyrirtæki í...
meira -
08. september 2016
Yfirlýsing vegna gjalda og skatta Fjarðaáls
Að gefnu tilefni, vegna frétta undanfarna daga um meintar háar vaxtagreiðslur Fjarðaáls til móðurfélags síns og skattgreiðslur fyrirtækisins hér á landi, vill undirritaður koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum: Fjárfesting Alcoa í Fjarðaáli var ein sú dýrasta sem um getur í Íslandssögunni en hún nam um 230 milljörðum króna. Það er...
meira -
22. júlí 2016
Dúx Menntaskólans á Egilsstöðum hlaut námsstyrk frá Samfélagssjóði Alcoa
Stefán Aspar Stefánsson er dúx Menntaskólans á Egilsstöðum 2016 og útskrifaðist með meðaleinkunnina 9,37. Dúxinn stefnir á lögfræði í Háskólanum á Akureyri en hann hlaut nýlega styrk að upphæð 4.000 Bandaríkjadalir frá Samfélagssjóði Alcoa. Stefán Aspar tók formlega á móti styrknum við athöfn í mötuneyti Fjarðaáls þann 1. júlí. T.f.v....
meira -
27. júní 2016
Nítján fjölbreytt samfélagsverkefni hlutu styrk frá Styrktarsjóði Fjarðaáls
Þann 9. júní voru veittir 19 styrkir úr Styrktarsjóði Alcoa Fjarðaáls og 13 styrkir frá Spretti, afrekssjóði UÍA og Fjarðaáls. Styrkúthlutun úr Styrktarsjóðnum og Spretti fer fram tvisvar á ári: að vori og að hausti. Alcoa Fjarðaál leggur sitt af mörkum til að stuðla að framgangi góðra mála á Austurlandi....
meira -
06. júní 2016
Ársfundur, staða áliðnaðar, háskólanám, orka og kókdósir í fréttabréfi Samáls
Fréttabréf Samáls, samtaka álframleiðenda, kemur nú út í annað skipti á þessu ári. Tilgangurinn með þessari útgáfu er að stuðla að upplýstri umræðu um áliðnað á Íslandi. Til umfjöllunar í fréttabréfinu er nýafstaðinn ársfundur Samáls. Þar var m.a. rætt um stöðu og horfur í áliðnaði, þróun orkuiðnaðar í Evrópu, framtíðarsýn...
meira -
03. júní 2016
Þjálfun og vitundarvakning starfsmanna Fjarðaáls skilar góðum árangri í umhverfismálum
Á hverju ári skilar Alcoa Fjarðaál inn grænu bókhaldi til Umhverfisstofnunar, ásamt skýrslu sem Náttúrustofa Austurlands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands vinna fyrir fyrirtækið. Þessar skýrslur vegna ársins 2015 eru nú aðgengilegar á vef Fjarðaáls. Alcoa setur sér mjög strangar kröfur í umhverfismálum og umhverfisvernd er þungamiðja í starfsemi fyrirtækisins um allan...
meira -
24. maí 2016
Sundkappar á Mið-Austurlandi öfluðu tæpum 1,6 milljónum í þágu aldraðra
Laugardaginn 21. maí efndi heilsueflingarnefnd Alcoa Fjarðaáls í samstarfi við Fjarðabyggð, Fljótsdalshérað og Seyðisfjarðarkaupstað til skemmtilegrar keppni milli sundkappa í sundlaugunum í Neskaupstað, á Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Egilsstöðum og Seyðisfirði. Alls 257 sjálfboðaliðar syntu samtals 144 km og öfluðu með því tæpum 1,6 milljónum króna sem renna til hjúkrunarheimila á svæðinu....
meira -
18. maí 2016
Innlend útgjöld álvera á Íslandi námu um 92 milljörðum
Grunnstoð í efnahagslífinu var yfirskrift ársfundar Samáls sem haldinn var í Kaldalóni í Hörpu í morgun, 18. maí. Á fundinum var farið yfir málefni áliðnaðarins í erindum sem flutt voru af Magnúsi Þór Ásmundssyni, stjórnarformanni Samáls, Ragnheiði Elínu Árnadóttur iðnaðarráðherra, Kelly Driscoll, sérfræðingi hjá greiningarfyrirtækinu CRU, og Gunnari Tryggvasyni hjá...
meira -
11. maí 2016
Útskrift Stóriðjuskóla Fjarðaáls
Þann 6. maí síðastliðinn útskrifuðust 24 starfsmenn frá Stóriðjuskóla Fjarðaáls. Að skólanum standa Alcoa Fjarðaál, Austurbrú og Verkmenntaskóli Austurlands. Er þetta í þriðja sinn sem nemendur útskrifast úr grunnnáminu, en skólinn hóf göngu sína haustið 2011. Útskriftarathöfnin fór fram í mötuneyti fyrirtækisins, að loknum kynningum á lokaverkefnum nemenda. Jóna Árný...
meira -
12. apríl 2016
Alcoa styrkir uppbyggingu náms í efnisfræði og málmfræði
Á málstofu sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík (HR) fimmtudaginn 7. apríl, afhenti Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls skólanum styrk til áframhaldandi eflingar rannsókna og kennslu í efnisverkfræði og málmfræði á háskólastigi. Umfjöllunarefni málstofunnar var efnisverkfræði í sjálfbærri álframleiðslu. Hún var önnur í röð fjögurra málstofa í HR...
meira -
08. apríl 2016
Lið Alcoa Fjarðaáls safnaði hæstu upphæðinni í Mottumars 2016
Skeggprúðir karlmenn hafa sett svip á starfssvæði Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði í mars á síðastliðnum sex árum og með mottunni hafa þeir safnað fé til stuðnings rannsóknum á krabbameini hjá karlmönnum. Oft hefur liðið verið nálægt sigri en í ár, síðasta árið sem keppnin er haldin, bar liðið sigur úr...
meira -
15. mars 2016
Hið nýja virðisaukandi fyrirtæki Alcoa hlýtur nafnið Arconic
Alcoa tilkynnti í dag nafn, merki og einkunnarorð á þeim hluta fyrirtækisins sem mun í haust taka við virðisaukandi framleiðslu Alcoa. Nýja fyrirtækið heitir Arconic og einkunnarorð þess verða nýsköpun og verkfræðileg hönnun. Áfram verður unnið að skiptingu Alcoa í tvö sjálfstæð fyrirtaki á hlutabréfamarkaði. Nýja nafnið, Arconic, dregur saman...
meira